09.08.10 - 15:25
Magnús Már Einarsson
Martin O\'Neill hættur með Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Martin O\'Neill er hættur sem knattspyrnustjóri Aston Villa en félagið greindi frá þessu nú rétt í þessu.
Kevin MacDonald, þjálfari varaliðsins, mun taka tímabundið við stjórnvölunum en Aston Villa mætir West Ham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.
Engin skýring hefur verið gefin á brotthvarfi O\'Neill en hann tók við Aston Villa árið 2006. Þó er talið að O\'Neill sé ósáttur við að Aston Villa ætli að selja James Milner til Manchester City og að það sé líkleg ástæða á brotthvarfi hans.
,,Ég hef notið tímans hjá Aston Villa í botn. Það er auðvitað leiðinlegt að yfirgefa svona magnað félag,\" sagði O\'Neill.
,,Ég vil þakka leikmönnum Villa, þjálfaraliði mínu og stuðningsmönnum Villa fyrir stuðninginn og hvatninguna sem ég og félagið hef fengið á tíma mínum sem knattspyrnustjóri. Ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni.\"

Heimild: BBC