09.08.10 - 17:01
Magnús Már Einarsson
Nicky Shorey til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur keypt vinstri bakvörðinn Nicky Shorey frá Aston Villa.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en hinn 29 ára gamli Shorey skrifaði undir tveggja ára samning við WBA í dag.
Shorey gekk í raðir Aston Villa frá Reading árið 2008 en náði sér aldrei á strik hjá Villa.
Á síðasta tímabili fór Shorey á láni til Nottingham Forest og síðan Fulham en nú er ljóst að hann verður í eldlínunni með WBA í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Shorey er fimmti leikmaðurinn sem WBA fær í sumar en áður höfðu Pablo Ibanez, Steven Reid, Boaz Myhill og Gariel Tamas komið til félagsins.

Heimild: Sky