Varnarmennirnir Birgir Magnús Birgisson og Fannar Óli Friðleifsson hafa framlengt sína við Hauka í 2. deild karla.
Báðir eru þeir upphaldir Haukamenn.
Birgir eða Biggi er flestum Haukamönnum kunnugur en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið árið 2013, þá aðeins 16 ára gamall. Birgir Magnús er einn af máttarstólpum liðsins og reynslumesti leikmaðurinn í liðinu.
Fannar Óli, sem er 22 ára, steig sín fyrstu skref í meistaraflokki 2018 og hefur spilað með Álftanesi og ÍH ásamt því að hafa leikið með KÁ á láni frá Haukum árið 2019.
„Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Bigga og Fannar Óla og bindum miklar vonir við þá á komandi tímabili," segir í tilkynningu Hauka.
Haukar, sem höfnuðu í fimmta sæti 2. deildar karla, sömdu í gær við markvörðinn Hlyn Örn Hlöðversson.
Athugasemdir