09.12.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Dick Advocaat tekur við AZ Alkmaar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Dick Advocaat landsliðsþjálfari Belgíu hefur veirð ráðinn knattspyrnustjóri AZ Alkmaar í Hollandi út tímabilið en mun halda áfram starfi sínu með Belgíu í leiðinni.
AZ Alkmaar vann hollensku deildina á síðustu leiktíð en Louis van Gaal hætti sem þjálfari liðsins og Ronald Koeman tók við. Koeman var svo rekinn um helgina eftir dapra frammistöðu liðsins.
Advocaat mun hafa fengið símtal frá félaginu áður en tímabilið hófst og áður en Koeman var ráðinn. Hann sagði að hann hafi fengið símtal að nýju á laugardaginn.
Hann er fyrrverandi landsliðsþjálfari Hollendinga. Hann nýtir sér klásúlu í samningi sínum um Belga þess efnis að hann megi taka tímabundið við félagsliði.

Heimild: Sky