Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. desember 2019 20:05
Aksentije Milisic
Guardiola leitaði að Fred til að hughreysta hann
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, leitaði að Fred, miðjumanni Manchester United, til þess að hughreysta hann eftir leikinn. Fred varð fyrir kynþáttaníð af stuðningsmanni City á meðan leiknum stóð.

Myndband hefur gengið á netinu af stuðningsmanni City þar sem hann er með kynþáttaníð í áttina að Fred og Jesse Lingard, þegar þeir voru upp við hornfánann og ætluðu að fara framkvæma hornspyrnu á 68. mínútu leiksins. Einnig köstuðu stuðningsmenn City kveikjurum í áttina að þeim og einn svoleiðis hitti Fred.

ESPN segir að þegar Guardiola var búinn að sinna fjölmiðlum þá fór hann að leita að Fred til þess að ræða við hann um málið og hughreysta leikmanninn.

Fred sagði í samtali við brasilíska fjölmiðla að því miður séu kynþáttafordómar alltof algengir í nútímasamfélagi.
Athugasemdir
banner
banner