Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   fim 09. desember 2021 11:46
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Þungavigtin | 433.is 
Oliver Stefáns á leið til ÍA á lánssamningi
Oliver Stefánsson.
Oliver Stefánsson.
Mynd: Norrköping
Miðvörðurinn Oliver Stefánsson, 19 ára varnarmaður Norrköping, er á leið til ÍA á lánssamningi en þetta staðfestir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari Skagamanna, við 433.is.

Oliver er uppalinn Skagamaður og er sonur Stefáns Þórðarsonar fyrrum landsliðsmanns og Magneu Guðlaugsdóttur fyrrum landsliðskonu.

Sagt var frá því í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin að Oliver, sem hefur verið óheppinn með meiðsli og veikindi, væri á heimleið og Jóhannes Karl segir að það stefni í að svo verði.

„Það er mjög líklegt, hann er að koma til baka og byrjar að æfa með okkur eftir áramót. Við ætlum að reyna að hjálpa honum í gang, þetta snýst um það að geta hjálpað honum að komast í stand til að spila fótbolta," segir Jóhannes.

Oliver er að jafna sig eftir að fékk hafa fengið blóðtappa rétt fyrir neðan háls en það hefur haldið honum frá keppnisvellinum stærstan hluta þessa árs.

Skagamenn náðu með ótrúlegum endaspretti að bjarga sér frá falli úr efstu deild á liðnu tímabili. Þá komust þeir í bikarúrslitaleikinn en töpuðu þar fyrir Víkingum.
Athugasemdir
banner
banner
banner