10.01.05 - 04:42
Derlei og fimm aðrir til Dynamo Moskvu (Staðfest)

Derlei

Derlei

Dynamo Moskva hafa hreppt Brasilíska sóknarmanninn Derlei frá Evrópumeisturum Porto. Derlei fór mikinn á tvennutímabilinu undir stjórn Jose Mourinho sem vann bæði deild og Meistaradeild. Hann hittir fyrir félaga sína í æfingaferð í Tyrklandi í dag.
Dynamo skruppu til Portúgal í verslunarferð og nutu góða veðursins og keyptu sér nóg af leikmönnum. Auk Derlei keyptu þeir varnarmanninn Tiago Da Silva, landa og samherja Derlei í Porto, Jorge Ribeiri frá Gil Vicente og Ciser, 18 ára gamlan framherja frá Braga.
Verslunaferðin hefur staðið yfir í rúma viku en þeir höfðu áður tryggt sér þá Miguel "Danny" Gomes, framherja frá Sporting og Nuno Frechaut frá Boavista en hann er varnarmaður.
Dynamo hafa verið manna öflugastir í að styrkja liðið sitt en liðið er í
fallbaráttu í rússnesku deildinni.