Fotbolti.net
10.02.10 - 12:54
Magnús Már Einarsson

Nenad Zivanovic í Þór (Staðfest)

Nenad Zivanovic í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór hefur gert eins árs samning við Nenad Zivanovic fyrrum leikmann Breiðabliks.
Zivanovic lék með Breiðablik frá 2006-2008 og skoraði sautján mörk í 60 leikjum með liðinu.

Breiðablik og Stjarnan reyndu að fá Zivanovic fyrir síðasta tímabil en það var of seint þar sem að þessi 33 ára gamli miðjumaður var búinn að semja við VB/Sumba í Færeyjum.

Zivanovic lék með VB/Sumba í næstefstu deild í Færeyjum síðastliðið sumar en hann hefur einnig leikið með FC Sumadija í Serbíu síðan að hann yfirgaf Breiðablik.

Zivanovic mun koma til Íslands í apríl og hefja þá æfingar með Þórsurum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.