Fotbolti.net
10.02.10 - 16:52
Magnús Már Einarsson

Þórður Steinar til HB - Magnús Már í Hödd (Staðfest)

Þórður Steinar í leik gegn Breiðablik.

Þórður Steinar í leik gegn Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Færeyska félagið HB hefur keypt varnarmanninn Þórð Steinar Hreiðarsson frá Þrótti. Kristján Guðmundsson þjálfar HB en liðið er færeyskur meistari.
Þróttarar greina frá þessu á heimasíðu sinni en þar kemur einnig fram að Magnús Már Lúðvíksson hefur samið við Hödd í Noregi. Fótbolti.net greindi frá því í gær að Magnús Már væri á leið til félagsins en hann stóð sig vel þegar að hann var þar á reynslu á dögunum.

,,Samningaviðræður við HB hafa staðið í nokkurn tíma með þeirri niðurstöðu að Þróttur og Þórður hafa náð samkomulagi við félagið,\" segir á heimasíðu Þróttar.

,,Það er mikil eftirsjá hjá Þrótti af þessum tveim sterku leikmönnum og þökkum við þeim kærlega fyrir tímann sem þeir hafa átt hjá Þrótti.\"

,,Jafnframt óskum við þeim alls hins besta hjá nýjum félögum á erlendri grund og vonum að sjálfsögðu að við eigum eftir að sjá þá aftur leika listir sínar í röndótta búningnum.\"


Þórður Steinar er uppalinn í Val en hann hefur leikið með Þrótti undanfarin fjögur ár.

Á síðasta tímabili settu meiðsli strik í reikninginn hjá Þórði en hann lék þá tíu leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni.

Heimild: Heimasíða Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.