Fotbolti.net
10.03.12 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Aron Már, Ari Páll, Örn Rúnar og Vigfús Geir í Hamar (Staðfest)

Aron Már Smárason.

Aron Már Smárason.

Canon

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Hamar úr Hveragerði hefur fengið Aron Má Smárason, Ara Pál Ísberg, Vigfús Geir Júlíusson og Örn Rúnar Magnússon til liðs við sig.
Aron Már kemur frá Haukum en þessi 27 ára gamli framherji var mikið meiddur í fyrra og lék einungis einn leik í fyrstu deildinni. Aron Már lék lengi með Njarðvík áður en hann fór í Breiðablik árið 2009. Hann skoraði síðan tíu mörk í fyrstu deildinni 2010 þegar hann var á láni hjá Fjarðabyggð.

Ari Páll kemur á láni frá Fylki en þessi tvítugi leikmaður getur leikið sem miðvörður og bakvörður.

Örn Rúnar kemur á láni til Hamars frá FH. Örn Rúnar lék með ÍH í annarri deildinni í fyrra en hann spilar sem miðju og kantmaður.

Vigfús Geir er kominn aftur til Hamars eftir að hafa leikið með HK síðari hluta tímabils í fyrra en þessi 22 ára gamli varnar og miðjumaður á 40 leiki að baki með Hvergerðingum.

Hamar hefur leik í B deild Lengjubikarsins þegar liðið mætir Njarðvík í dag en allir þessir leikmenn verða með þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.