Fotbolti.net
10.03.12 - 07:30
Magnús Már Einarsson

Njarðvík fær fjóra leikmenn (Staðfest)

Stefán, Garðar, Hörður og Marteinn.

Stefán, Garðar, Hörður og Marteinn.

Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvíkingar hafa fengið Garðar Sigurðsson, Hörð Inga Harðarson, Martein Sindra Svavarsson og Stefán Guðberg Sigurjónsson til liðs við sig.

Allir þessir leikmenn hafa æft með Njarðvíkingum að undanförnu og spilaði æfingaleiki með liðinu.
Garðar og Stefán koma báðir frá Þrótti Vogum en þeir eru uppaldir hjá Keflavík. Stefán er markvörður en hann mun hjálpa Njarðvíkingum að fylla skarð Almars Elí Færseth sem hefur lagt hanskana á hilluna.

Hörður Ingi er kominn aftur til Njarðvíkinga frá Víði Garði en hann lék með báðum þessum liðum síðastiðið sumar.

Marteinn Sindri, sem er varnarmaður, kemur til Njarðvíkinga frá Fram. Marteinn er uppalinn hjá Fram en hann verið hjá Hamar undanfarin þrjú ár þar sem hann hefur leikið 67 leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.