Fotbolti.net
10.03.12 - 06:30
Magnús Már Einarsson

Brynjar Óli Guðmundsson í KB (Staðfest)

Brynjar Óli Guðmundsson.

Brynjar Óli Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Varnarmaðurinn Brynjar Óli Guðmundsson hefur fengið félagaskipti úr Leikni yfir í KB og mun spila með liðinu í 3. deildinni í sumar.

KB var hársbreidd frá því að komast upp í 2. deildina síðasta sumar.
Brynjar lék með KB 2008 en hefur síðan verið í herbúðum Leiknis og lék 16 leiki í 1. deildinni í fyrra. Hann mun spila með KB gegn KFR í Lengjubikarnum í dag.

KB er notað sem varalið hjá Leikni og hefur félagið fengið þrjá leikmenn úr 2. flokki félagsins sem komnir eru með leikheimild.

Það eru bakvörðurinn og miðjumaðurinn Sigmar Egill Baldursson, bakvörðurinn Hrannar Jónsson og markvörðurinn Freyr Saputra Daníelsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.