Valur heimsækir Þór í Boganum í Lengjubikarnum klukkan 17:00 í dag. Leikurinn er úrslitaleikur um að komast í undanúrslit Lengjubikarsins.
Athygli vekur að byrjunarlið Vals er að mestu skipað reynslulitlum mönnum sem hafa litla eða nær enga reynslu af meistaraflokki liðsins.
Meðalaldur byrjunarliðs Vals er rúmlega 20 ár, en reynslumesti leikmaður liðsins er Bjarni Mark Antonsson.
Valur er ekki fyrsta liðið sem mætir með varalið í Bogann og mætir Þór vegna meiðslahættu en FH gerði slíkt hið sama í fyrra eins og Stjarnan og KR árið áður. Víkingur skildi jafnframt lykilmenn eftir heima fyrr í vetur þegar liðið mætti KA.
Samkvæmt því sem Fótbolti.net kemst næst er Breiðablik eina Bestu deildar liðið sem hefur mætt með sitt sterkasta lið í Bogann í leik gegn Þór frá árinu 2023 en það var í undanúrslitum Lengjubikarsins 2024.
Veðbankar hafa litla trú á Völsurum en veðmálasíðan Epicbet býður upp á tæplega ellefu í stuðul á Val, en aðeins 1.18 á Þór.

Byrjunarlið Vals:
Stefán Þór Ágústsson (m)
Loki Gunnar Rósinkranz
Bjarni Mark Antonsson (f)
Þórður Sveinn Einarsson
Kristján Oddur Kristjánsson
Stefán Gísli Stefánsson
Hilmar Óli Viggósson
Emil Nönnu Sigurbjörnsson
Mattías Kjeld
Andi Hoti
Birkir Jakob Jónsson
Meðalaldur: 20.3
Varamenn:
Stefan Tufegdzic
Gunnar Karl Heiðdal
Óskar Sveinn Einarsson
Daníel Hjaltalín Héðinsson
Pétur Eiríksson
Birgir Óliver Árnason
Viktor Þór Lárusson
Athugasemdir