10.04.12 - 15:51
Magnús Már Einarsson
Petar Rnkovic í Breiðablik (Staðfest)

Petar í treyju Blika árið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Breiðablik hefur samið við sóknarmanninn Petar Rnkovic en hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Petar er væntanlegur til landsins í vikunni.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kom til Breiðabliks á reynslu árið 2006 en samdi þá ekki við félagið.

Peter hefur lengst af á ferli sínum leikið í heimalandinu Noregi, síðast með Mjøndalen í fyrra.
Að auki hefur Petar leikið með Stromsgödset og Randaberg undanfarin ár auk þess sem hann stoppaði stutt við hjá Grays Athletic á Englandi.
Sumarið 2002 lék Petar með KS á Siglufirði en hann skoraði þá átta mörk í þrettán leikjum í annarri deildinni.
Á ferli sínum hefur Petar alltaf skorað mikið en árið 2005 skoraði hann 52 mörk í einungis 25 deildar og bikarleikjum með Mjøndalen. Hann skoraði síðan tíu mörk með liðinu í norsku fyrstu deildinni á síðasta tímabili.

Heimild: Blikar.is