Fotbolti.net
10.07.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Thelma Ýr Gylfadóttir í ÍA (Staðfest)

Thelma Ýr í leik með Fylki í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar.

Thelma Ýr í leik með Fylki í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Framherjinn Thelma Ýr Gylfadóttir er gengin í raðir uppeldisfélags síns, ÍA, frá Fylki og fær leikheimild með Skagastúlkum á þriðjudaginn næsta, 15. júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar að nýju.
Thelma Ýr Gylfadóttir sem einnig er 19 ára gömul hafði gengið í raðir Fylkis frá Val fyrir þessa leiktíð. Hún lék fimm leiki með Fylki í Landsbankdeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark auk þess að leika einn bikarleik.

Hún hætti hjá félaginu í lok júní en þá staðfesti þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net eftir bikarleik gegn Fjölni að hún hafi tekið ákvörðun um að taka því rólega um sinn.

Hún lék fimm leiki með Val í Landsbankadeildinni síðasta sumar og í heildina lék hún á tveimur tímabilum 16 leiki fyrir Val og skoraði í þeim fimm mörk, öll á síðasta sumri.

Í heildina á hún að baki 30 leiki í Landsbankadeild kvenna fyrir Fylki, Val og ÍA og hefur skorað í þeim níu mörk auk þess sem hún hefur leikið 10 leiki í 1. deild kvenna.

Hún hefur leikið 5 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands þar sem hún hefur skorað eitt mark auk fjögurra leikja í U17 ára landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.