Fotbolti.net
10.07.08 - 15:19
Guðmundur Dagur Ólafsson

Sidwell til Aston Villa (Staðfest)

Sidwell er kominn til Villa

Sidwell er kominn til Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Steve Sidwell frá Chelsea og er kaupverðið í kringum 5 milljónir punda.
Chelsea samþykkti tilboðið frá Villa í gær og Sidwell gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær sem hann stóðst. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Villa.

Sidwell gekk til liðs við Chelsea síðasta sumar á frjálsri sölu frá Reading en hann fékk ekki mörg tækifæri eftir að Jose Mourinho var rekinn og Avram Grant tók við.

Hann er fyrstu kaup Martin O\'Neill í sumar en hann mun hitta liðsfélaga sína á næstu dögum í Sviss þar sem þeir eru i æfingabúðum og leika tvo æfingaleiki.

„Ég er í skýjunum með að vera kominn hingað. Þetta hefur tekið sinn tíma en ég get ekki beðið eftir að hefja æfingar og spila leiki. Eftir að talað við knattspyrnustjórann og formanninn um þeirra framtíðaráform, þá sé ég að þeir ætla sér stóra hluti og reyna að komast í topp fjögur sætin,\" sagði Sidwell eftir að hafa skrifað undir.


Heimild: Heimasíða Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.