Fotbolti.net
10.07.08 - 17:32
Brynjar Ingi Erluson

Kristinn Freyr Sigurðsson í Stjörnuna (Staðfest)

Kristinn Freyr Sigurðsson

Kristinn Freyr Sigurðsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Stjarnan í fyrstu deildinni hefur fengið til sín miðjumanninn efnilega Kristinn Freyr Sigurðsson, en hann kemur frá Landsbankardeildarliði Fjölnis.
Kristinn, sem er 16 ára gamall gerir samning við Stjörnuna út tímabilið, en þetta staðfesti hann í samtali við Fotbolta.net í dag.

Kristinn er öflugur sóknarmiðjumaður sem mun koma til með að æfa og spila með meistaraflokki liðsins.

Hann lék með meistarflokk Fjölnis á undirbúningstímabilinu, en meiddist síðan í lok maí og hefur verið frá þangað til í byrjun júlí þegar hann hóf æfingar að nýju.

Hann hefur leikið einn leik í 1.deild karla, en þá kom hann inná í 5-2 tapi gegn Grindavík í fyrrasumar.

Þá hefur hann verið í úrtakshóp U-19 ára landsliðsins, og hefur spilað tvo leiki fyrir U-17 ára landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.