Óskar Smári svekktur en rólegur í glugganum: „Ég er ekki á Wyscout að skoða klippur af útlendingum“

Óskar Smári Haraldsson var svekktur eftir 1-1 jafntefli Stjörnunnar gegn Val á Hlíðarenda og taldi sitt lið hafa átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson var svekktur eftir 1-1 jafntefli Stjörnunnar gegn Val á Hlíðarenda og taldi sitt lið hafa átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan gerði 1-1 jafntefli gegn Val á Hlíðarenda í kvöld. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur eftir leik og taldi sitt lið hafa átt að fara heim með öll þrjú stigin.
„Bara svekktur að fara ekki héðan með þrjú stig. Góður fyrri hálfleikur. Við gerðum alveg miklu meira nóg til að fá þrjú stig hérna í dag.“
Óskar sagði þó að Stjarnan hefði ekki verið nægilega góð undir lok leiks.
„Á sama tíma þarf ég líka að virða stigið sem við fengum í dag. Síðustu 20 mínúturnar okkar voru ekki nægilega góðar, eiginlega bara mjög lélegar, og Valur gat stolið þessu í lokin.“
„Mér fannst leikplanið okkar ganga mjög vel upp í fyrri hálfleik. Mér fannst við opna þær mjög oft og komast í þær stöður sem við ætluðum að koma okkur í.“
„Mér fannst við bara keyra yfir þær. Það eina sem vantaði í fyrri hálfleik var að skora fleiri mörk. Við hefðum hæglega átt að vera 3-0 yfir í hálfleik.“
Valur jafnaði í seinni hálfleik og Óskar var ósáttur með viðbrögð síns liðs eftir markið.
„Það sem ég er svekktastur með er að eftir að þær jafna í 1-1 þá gefum við einhvern veginn eftir. Það er mesta svekkelsið.“
„Við hættum eiginlega eftir að þær jöfnuðu. Það var margt mjög gott í þessum leik og fyrri hálfleikurinn var mjög öflugur, en svona er þetta.“
Stjarnan er áfram í toppbaráttunni en Óskar vill ekki horfa of mikið á önnur lið.
„Við viljum bara enda eins ofarlega og hægt er að enda. Við förum í alla leiki til að vinna og ef þú ferð í alla leiki til að vinna og vinnur þá leiki þá endar þú sem Íslandsmeistari.“
„Þetta er ógeðslega leiðinleg tugga sem er alltaf sögð en maður þarf bara að halda áfram að segja hana. Við tökum einn leik í einu og næsti leikur er Þór/KA.“
„Það verður erfiður leikur. Þær eru ekki búnar að fá á sig mark í þrjá hálfleiki í röð og búnar að vinna 2-0 núna í röð. Við erum að mæta liði með mómentum í næsta leik.“
Félagskiptaglugginn er að opna í næstu viku en Óskar segir ekki vera neinar ákveðnar styrkingar planaðar hjá Stjörnunni.
„Það eru engar styrkingar planaðar eins og staðan er núna. Ég held að öll lið horfi á það þegar glugginn er að opna hvort það sé hægt að gera eitthvað.“
„Við erum að missa leikmenn þannig að við þurfum kannski mögulega að bregðast við. Við erum samt alveg rólegar, við erum með stóran og góðan hóp.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan




