10.08.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Andre Ooijer til Ajax (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ajax hefur gert eins árs samning við varnarmanninn reynda Andre Ooijer en félagið greindi frá þessu í gær.
Ooijer kemur frítt til félagsins en hann yfirgaf herbúðir PSV Eindhoven í sumar.
Þessi 36 ára gamli leikmaður lék með PSV á síðasta tímabili eftir að hafa leikið í nokkur ár með Blackburn.
Ooijer lék með hollenska landsliðinu á HM í sumar en hann kom meðal annars við sögu í tapinu gegn Spánverjum í úrslitaleiknum.

Heimild: Reuters