Fotbolti.net
10.08.10 - 18:16
Magnús Már Einarsson

Emile Mpenza semur við félag í Azerbaijan (Staðfest)

Emile Mpenza semur við félag í Azerbaijan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski framherjinn Emile Mpenza hefur samið við Neftchi Baku í Azerbaijan.
Þessi 32 ára gamli leikmaður skoraði 21 mark með FC Sion í svissnesku deildinni á síðasta tímabili en nú er hann á leið til Azerbaijan.

Mpenza hefur í gegnum tíðina meðal annars leikið með Schalke, Hamburg og Manchester City en ferill hans hefur verið á niðurleið að undanförnu.

Mpenza hefur skorað nítján mörk í 57 landsleikjum með Belgum en síðasti landsleikur hans var í október í fyrra.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.