10.09.08 - 14:17
Magnús Már Einarsson
Damiano Tommasi til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Queens Park Rangers hefur samið við ítalska miðjumanninn Damiano Tommasi.
Tommasi hefur skrifað undir eins árs samning við QPR en hann var án félags eftir að hafa yfirgefið Levante í sumar.
,,Koma Damiano þýðir að við fáum mikla reynslu inn í hópinn,\" sagði Iain Dowie stjóri QPR.
Tommasi, sem er 34 ára gamall, er fyrrum landsliðsmaður Ítala en hann lék meðal annars á HM 2002.
Hann lék í mörg ár með Roma áður en hann fór til Levante og lék tvö ár með spænska félaginu.

Heimild: Sky