Fotbolti.net
10.11.08 - 15:52
Hafliði Breiðfjörð

Vesna Smiljkovic í Þór/KA (Staðfest)

Vesna Smiljkovic í leik með Keflavík í sumar. Hún mun leika með Þór/KA næsta sumar.

Vesna Smiljkovic í leik með Keflavík í sumar. Hún mun leika með Þór/KA næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Framherjinn Vesna Smiljkovic er gengin í raðir Þór/KA frá Keflavík en þetta staðfesti Dragan Stojanovic þjálfari Þór/KA í samtali við Fótbolta.net í dag. Hún skrifaði undir eins ár samning við Þór/KA í dag og kemur til móts við liðið í vor.
Vesna Smiljkovic er 25 ára gömul og hefur leikið með Keflavík síðan sumarið 2005. Á þeim tíma hefur hún skorað 25 mör í 67 leikjum í deild og bikar fyrir liðið. Hún lék 17 leiki með Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.

Vesna Smiljkovic er kantmaður sem spilaði oftast á vinstri vængnum hjá Keflavík. Hún var valin leikmaður 7. umferðar Landsbankadeildarinnar í sumar hér á Fótbolta.net.

,,Þetta er frábær styrkur fyrir okkur, ég er mjög ánægður með þetta. Hún er ekta alvöru framherji og getur skorað mörk gegn hvaða liðum sem er eins og hún sýndi hjá Keflavík,\" sagði Dragan í samtali við Fótbolta.net í dag.

Hann sagði að Þór/KA hafi einnig gert nýjan samning við Berglindi Magnúsdóttur markvörð liðsins og að hann muni tefla fram sömu varnarlínu næsta sumar og í ár.

,,Við sjáum til hvernig verður með hinar erlendu stúlkurnar, það er erfitt ástand en við sjáum til hvað gerist á næstu mánuðum,\" sagði hann.

Sjálfur hefur Dragan nýlega skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.