10.12.08 - 10:56
Hafliði Breiðfjörð
Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir í Örebro (Staðfest)
Níu íslenskar stúlkur komnar í sænska boltann

Ólína og Edda leika í sænsku deildinni á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir hafa samið við sænska félagið KIF Örebro og ganga til liðs við félagið frá KR. Þetta staðfesti Edda í samtali við Fótbolta.net í dag.
Edda Garðarsdóttir er 29 ára gamall miðjumaður. Hún hefur auk KR leikið með Breiðablik. Samtals hefur hún leikið 162 leiki í efstu deild og skorað í þeim 42 mörk. Hún hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu sem vann sér sæti á EM 2009 og í heildina hefur hún leikið 64 landsleiki og skorað í þeim 2 mörk.
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir er 26 ára gamall varnar- og kantmaður. Auk KR hefur hún leikið með Breiðablik og Grindavík. Hún hefur leikið 105 leiki í efstu deild og skorað í þeim 30 mörk. Hún hefur einnig átt fast sæti í íslenska landsliðinu og hefur leikið 23 landsleiki.
Ólína og Edda bætast þar með í ört stækkandi hóp landsliðskvenna Íslands sem ætla að leika í Svíþjóð á næstu leiktíð. Fyrir eru í deildinni þær Dóra Stefánsdóttir og Erla Steina Arnardóttir og eftir að tímabilinu lauk hér heima hafa þær Margrét Lára Viðarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Ásta Árnadóttir gengið til liðs við lið í Svíþjóð auk Eddu og Ólínu.
Því eru sjö leikmenn farnir frá Íslandi til Svíþjóðar og í heildina orðnir níu íslenskar stúlkur í Svíþjóð auk Elísabetar Gunnarsdóttur sem hefur tekið við þjálfun Kristianstad.
KIF Örebro endaði í sjöunda sæti sænsku deildarinnar á síðustu leiktíð.