10.12.08 - 12:16
Magnús Már Einarsson
Timo Hildebrand til Hoffenheim (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hoffenheim hefur samið við markvörðinn Timo Hildebrand og verður hann kynntur sem nýjasti leikmaður liðsins á fréttamannafundi í dag.
Hoffenheim hefur slegið í gegn í þýsku Bundesligunni í vetur en liðið er á toppi deildarinnar ásamt Bayern Munchen.
Hildebrand losnaði undan samningi hjá Valencia í síðustu viku en hann var orðinn þriðji markvörður hjá liðinu og fékk því að fara.
Áður var Hildebrand á mála hjá Stuttgart en þessi 29 ára gamli markvörður fór til Valencia árið 2007. Hann mun nú snúa aftur í þýska boltann og reyna að hjálpa Hoffenheim að halda áfram góðum árangri.

Heimild: Reuters