10.12.09 - 15:49
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Gauti Emilsson til Liverpool (Staðfest)

Kristján Gauti Emilsson er orðinn leikmaður Liverpool.

Mynd: FH.is

Liverpool staðfesti í dag á vef sínum að Kristján Gauti Emilsson sé genginn í raðir félagsins frá Íslandsmeisturum FH en Fótbolti.net hafði greint frá því í síðustu viku að hann væri að fara til félagsins.
Kristján Gauti sem er sókndjarfur miðjumaður fer inn í akademíu Liverpool í janúar á næsta ári og gerir unglingasamning við enska félagið.

Kristján Gauti braust inn í leikmannahóp FH síðastliðið sumar þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gamall. Hann lék samtals þrjá leiki fyrir liðið í deildinni, þar af einn í byrjunarliði gegn Þrótti á Valbjarnarvelli.
Á vef Liverpool er rætt við Heimi Guðjónsson þjálfara FH sem hrósar Kristjáni Gauta í hástert.
,,Kristján er mjög efnilegur leikmaður og mjög þroskaður miðað við aldur,\" sagði Heimir á vef Liverpool.
,,Ég tók hann inn í aðalliðið síðasta vetur og það er ekki oft sem maður sér 16 ára gamlan strák eins góðan og hann.\"
,,Ég hef trú á að hann muni standa uppúr. Hann fær góða hjálp hjá foreldrum sínum og nú fær hann þrjú ár til að sanna sig. Ég er viss um að hann mun mæta öllum þeim kröfum sem settar eru á hann til að spila fyrir Liverpool.\"

Heimild: Vefur Liverpool