11.01.05 - 08:31
Ashton til Norwich (Staðfest)

Dean Ashton

Dean Ashton

Norwich hafa gengið frá kaupunum á framherjanum Dean Ashton frá Crewe fyrir 3 milljónir punda. Ashton hefur spilað með U-21 árs landsliði Englendinga og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning með möguleika á árs framlengingu eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Kaupverðið gæti hækkað um 500 þúsund pund og þá fær Crewe 20% af kaupverðinu sem Norwich selur hann á, fari svo í framtíðinni. "Dean er einn af bestu ungu framherjunum í landinu og hefur skorað reglulega fyrir Crewe" sagði Nigel Worthington um Ashton.
Ashton hafði skorað 17 mörk í ensku 1. deildinni og var markahæstur áður en hann fór til Norwich. Það verður því spennandi að sjá þennan unga framherja og hvort hann geti ekki lífgað upp á sóknarlínu Norwich.