Fotbolti.net
11.02.10 - 18:11
Magnús Már Einarsson

Guðjón Gunnarsson til ÍR (Staðfest)

Guðjón Gunnarsson til ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR hefur fengið miðjumanninn Guðjón Gunnarsson til liðs við sig frá Breiðablik.
Guðjón er uppalinn hjá Breiðablik en síðastliðið sumar lék hann þrjá leiki í Pepsi-deildinni með liðinu og einn leik í VISA-bikarnum.

Guðjón var síðan í láni hjá KS/Leiftri síðari hluta tímabils þar sem að hann skoraði fjögur mörk í ellefu leikjum í annarri deildinni.

Þessi 21 árs gamli leikmaður var einnig á láni hjá KS/Leiftri sumarið 2008.

Guðjón hefur æft með ÍR-ingum undanfarnar vikur en hann ætti að geta leikið sinn fyrsta mótsleik með liðinu í kvöld þegar að það mætir Val á Reykjavíkurmótinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.