11.02.10 - 17:14
Alexander Freyr Tamimi
Freddie Sears til Coventry á láni (Staðfest)

Freddie Sears skallar hér boltann í viðureign West Ham og Blackburn í fyrra.

Mynd: Getty Images

Freddie Sears skallar hér boltann í viðureign West Ham og Blackburn í fyrra.

Mynd: Getty Images
Enska Championship-deildarliðið Coventry, sem Aron Gunnarsson leikur með, hefur leyst framherjakrísu sína og fengið Freddie Sears leikmann West Ham á láni út tímabilið.
Eftir að Leon Best yfirgaf liðið og hélt til Newcastle á lokadegi félagsskiptagluggans urðu hlutirnir erfiðir fyrir Chris Coleman knattspyrnustjóra liðsins, enda var stórt skarð höggvið í framlínu Coventry með brottför hans.
Sears eyddi fyrri hluta tímabilsins hjá Crystal Palace en honum tókst ekki að skora mark í 19 leikjum. Hann hefur komið tvisvar inn á sem varamaður hjá West Ham eftir það en hann mun nú halda aftur á lán.
Hinn 20 ára Sears mun líkast til fara beint í byrjunarliðið þegar Coventry mætir Queens Park Rangers á laugardag.

Heimild: Sky