11.03.12 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Hugrún Elvarsdóttir í FH (Staðfest)

Hugrún ásamt Aldísi Köru Lúðvíksdóttur nýjum liðsfélaga sínum í FH.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Hugrún Elvarsdóttir hefur gengið til liðs við FH frá íslandsmeisturum Stjörnunnar.
Þó Hugrún sé aðeins 17 ára hefur leikið 21 meistaraflokksleik fyrir Stjörnuna og skorað í þeim 3 mörk.
Hugrún hefur auk þess leikið 10 landsleiki með undir 17 ára landsliðinu og skorað í þeim 4 mörk.
Helena Ólafsdóttir þjálfar lið FH sem eru nýliðar í Pepsi-deildinni í sumar og hefur Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur sér til aðstoðar.
Félagið hefur áður fengið til liðs við sig Söru Hrund Helgadóttur úr Grindavík og Sólveigu Þórarinsdóttur frá HK/Víkingi.
Þá mun Guðrún Bentína Frímannsdóttir spila með FH næsta sumar eftir að hafa misst af þessu tímabili vegna meiðsla en hún kom til FH frá Grindavík fyrir ári síðan.