Fotbolti.net
11.03.20 - 14:51
Elvar Geir Magnússon

Tilkynna að Böddi löpp verði í hóp gegn Rúmeníu

Böðvar í landsleik í Katar.

Böðvar í landsleik í Katar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Pólska félagið Jagiellonia Bialystok hefur tilkynnt að Böðvar Böðvarsson verði í íslenska landsliðshópnum sem leikur gegn Rúmeníu í umspilsleiknum umtalaða 26. mars.

Böðvar er 24 ára bakvörður sem á fimm A-landsleiki á ferlinum en hefur þó ekki spilað mótsleik.
Böðvar Böðvarsson hefur ekki verið í hópnum hjá Jagiellonia Bialystok í síðustu leikjum en hann er búinn að spila 9 af 26 deildarleikjum tímabilsins.

Vísir greindi frá þessu. KSÍ hefur ekki opinberað landsliðshópinn en gerir það væntanlega í lok næstu viku.

Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.