Fotbolti.net
11.04.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Abdoulaye Ndiaye í Selfoss (Staðfest)

Abdoulaye Ndiaye í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Abdoulaye Ndiaye hefur leikheimild með Selfyssingum en hann hefur æft með liðinu undanfarnar vikur.

Ndiaye getur leikið bæði frammi og á kantinum en hann verður með Selfyssingum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi tvítugi leikmaður er frá Senegal en hann lék síðast í efstu deild í heimlandi sínu.

Hjá Selfyssingum hittir hann fyrir landa sinn Babacar Sarr sem sló í gegn með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra.

Hinn ungi Sene Abdalha er einnig á mála hjá Selfyssingum eins og í fyrra en Ibrahima Ndiaye og Sidy Sow sem léku með liðinu síðastliðið sumar munu ekki koma aftur í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.