11.07.08 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Kristján Óli Sigurðsson í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss
Selfyssingar hafa náð samkomulagi við kantmanninn Kristján Óla Sigurðsson um að hann leiki með liðinu út tímabilið en skrifað verður undir samninga í dag.
Auk þess að leika með Selfyssingum þá mun Kristján Óli þjálfa 2.flokk félagsins.
Kristján Óli sem er 28 ára var ráðinn spilandi þjálfari hjá Hvöt síðastliðið haust eftir tíu ára dvöl hjá Breiðablik.
Hann hætti hins vegar hjá Hvöt í síðasta mánuði og hefur síðan þá verið án félags.
Kristján Óli skoraði 41 mark í 187 leikjum með Blikum frá árinu 1999 en í fyrra skoraði hann þrjú mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni.
Selfyssingar eru í öðru sætinu í fyrstu deild karla en liðið var taplaust þar til í gærkvöldi að það þurfti að lúta í gras í toppslag gegn ÍBV.