Fotbolti.net
11.07.08 - 12:10
Hörður Snævar Jónsson

Diego Cavalieri til Liverpool (Staðfest)

Diego Cavalieri til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur fest kaup á brasilíska markverðinum Diego Cavalieri en hann er 25 ára gamall.
Cavalieri skrifaði undir fjögurra ára samning við Liverpool en hann kemur fyrir óuppgefna upphæð frá Palmeiras.

,,Ég veit að það verður ekki auðvelt fyrir mig að komast í liðið,\" sagði Diego Cavalieri við heimasíðu félagsins.

,,Ég hef horft á nokkra leiki með Liverpool og veit að Pepe er mjög góður markvörður en allir verða að berjast um sína stöðu og ég er viss um að það verður heilbrigð samkeppni okkar á milli.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.