Fotbolti.net
11.07.08 - 13:41
Davíð Örn Atlason

Bernard Mendy til Hull (Staðfest)

Hull hafa fengið liðsstyrk

Hull hafa fengið liðsstyrk

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City, nýliðar í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið til sín franska varnarmanninn Bernard Mendy á frjálsri sölu frá Paris Saint Germain.
Mendy skrifaði undir þriggja ára samning við liðið eftir að samningur hans hafði runnið út hjá PSG.

Hann hefur unnið með Phil Brown, þjálfara Hull þegar að Brown var aðstoðarþjálfari Bolton. Þá var Mendy á láni hjá Bolton frá PSG.

,,Verkefnið er mjög áhugavert. Ég er mjög ánægður með að koma aftur til Englands,\" sagði Mendy.

,,Ég mun hitta fyrir Phil Brown aftur, en hann var aðstoðarþjálfari þegar að ég var á láni hjá Bolton. Það skipti sköpum.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.