Fotbolti.net
11.07.08 - 12:53
Hafliði Breiðfjörð

Þróttur lánar Ingva Sveinsson í ÍR (Staðfest)

Þróttur lánar Ingva Sveinsson í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ingvi Sveinsson leikmaður Þróttar er að ganga í raðir 2. deildarliðs ÍR á láni frá Þrótturum út tímabilið. Þetta staðfesti Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR í samtali við Fótbolta.net í dag og sagði að félögin væru að leggja lokahönd á samning sín á milli.
Ingvi Sveinsson verður 29 ára gamall á árinu. Hann hefur vermt varamannabekkinn hjá Þrótti í allt sumar og aðeins leikið einn leik með liðinu en það var bikarleikurinn gegn Fylki í síðasta mánuði.

Ingvi sem er hægri bakvörður á að baki 31 leik í efstu deild og hefur skorað í þeim eitt mark. Auk þess hefur hann leikið fjölda leikja í 1. deild en lék aðeins einn leik með Þrótti á síðustu leiktíð en missti mikið úr vegna meiðsla.

Hann fær leikheimild með 2. deildarliði ÍR næstkomandi þriðjudag, 15. júlí, þegar félagaskiptglugginn opnar. ÍR er í toppsæti 2. deildarinnar með þriggja stiga forskot á næsta lið sem er Afturelding.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.