11.07.08 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð
Lilja Dögg Valþórsdóttir í HK/Víking úr KR (Staðfest)

Lilja Dögg sem er hér vinstra megin á myndinni fagnar sigri KR í VISA-bikarnum á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lilja Dögg Valþórsdóttir er gengin í raðir HK/Víkings frá KR en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag. Hún var með samning við KR út tímabilið en fékk samþykki félagsins til þess að fara strax frá félaginu.
Lilja Dögg fær leikheimild með HK/Víking á næstkomandi þriðjudag, 15. júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar og gæti því leikið með liðinu gegn Stjörnunni í 10. umferð Landsbankadeildarinnar þá um kvöldið.
Hún sagði í samtali við Fótbolta.net í dag að samkomulag væri við KR um að hún spilaði ekki gegn félaginu þegar liðin mætast í 16. umferð deildarinnar 26. ágúst næstkomandi.
Lilja Dögg Valþórsdóttir er 26 ára gömul. Hún hefur leikið með KR síðan árið 2005 og á þeim tíma lék hún 41 leik með liðinu í Landsbankadeildinni og skoraði í þeim fjögur mörk auk fimm bikarleikja.
Hún hafði leikið fjóra leiki með KR í Landsbankadeildinni í sumar en átti ekki fast sæti í byrjunarliðinu þetta árið. Auk KR hefur hún leikið með Val, Stjörnunni og Þór/KA/KS.