11.07.08 - 14:08
Hafliði Breiðfjörð
Anna Margrét Gunnarsdóttir í Keflavík (Staðfest)

Anna Margrét í leik með Stjörnunni í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Anna Margrét Gunnarsdóttir er gengin í raðir Landsbankadeildarliðs Keflavíkur frá Stjörnunni og fær leikheimild með sínu nýja félagi næstkomandi þriðjudag, 15. júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar að nýju.
Hún verður því komin með leikheimild með Keflavík þegar liðið sækir KR heim í Frostaskjólið þá um kvöldið klukkan 19:15.
Anna Margrét Gunnarsdóttir er 28 ára gömul. Hún gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabilið 2004 og lék með liðinu 12 leiki í Landsbankadeildinni það sumarið og skoraði eitt mark. Hún skoraði svo 3 mörk í 13 leikjum árið eftir það.
Hún hafði ekkert leikið síðan 2004 er hún lék að nýju með Stjörnunni gegn HK/Víking í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar í vor. Hún lék aðeins einn leik með Stjörnunni í sumar og er nú gengin í raðir Keflavíkur.