11.07.08 - 16:01
Magnús Már Einarsson
Elinbergur Sveinsson aftur í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Varnarmaðurinn Elinbergur Sveinsson er á leið til Víkings Ólafsvíkur frá Leikni Reykjavík en þetta kemur fram á heimasíðu síðarnefnda félagsins.
Elinbergur var lykilmaður hjá Ólafsvíkingum áður en hann gekk til liðs við Leikni í lok árs 2006.
Í fyrra var Elinbergur fastamaður hjá Leikni en í ár hefur hann hins vegar ekki átt fast sæti í liðinu.
Elinbergur, sem er 26 ára, lék 30 leiki fyrir Leikni í deild og bikar og skoraði tvö mörk.
Hann mun ganga til liðs við Víking Ólafsvík þegar að félagaskiptaglugginn opnar næstkomandi þriðjudag og hann getur því leikið fyrsta leik sinn með liðinu gegn Haukum í næstu viku.