Fotbolti.net
11.07.08 - 18:21
Guðmundur Dagur Ólafsson

Freddy Guarin til Porto (Staðfest)

Porto hefur fengið liðsstyrk

Porto hefur fengið liðsstyrk

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska félagið Porto hefur tryggt sér kólumbíska landsliðsmanninn Freddy Guarin frá franska liðinu St Etienne.
Þessi 22 ára gamli miðjumaður mun skrifa undir fjögurra ára samning við portúgölsku meistaranna.

Guarin hefur spilað fyrir öll yngri landslið Kólumbíu og þá hefur hann þegar spilað 7 A-landsleiki.

„Ég lofa að ég muni gera mitt allra besta fyrir félagið og ég ætla mér að vinna titla\", sagði Guarin við blaðamenn.

Honum er ætlað að fylla skarðið sem Brasilíumaðurinn Paulo Assuncao skyldi eftir sig en hann gekk til liðs við spænska félagið Atletico Madrid á dögunum.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.