11.07.08 - 21:13
Guðmundur Dagur Ólafsson
Guthrie til Newcastle (Staðfest)

Guthrie er farinn til Newcastle

Mynd: Getty Images

Guthrie er farinn til Newcastle

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Danny Guthrie frá Liverpool.
Newcastle náði samkomulagi um kaupverð við Liverpool fyrr í dag og fengu leyfi til að ræða við þennan 21 árs gamla leikmann.
Guthrie skrifar undri fjögurra ára samning við Kevin Keegan og félaga en þetta er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Newcastle í sumar því fyrr í sumar fékk félagið argentínumanninn Jonas Gutierrez.
„Ég er mjög ánægður með að hafa gengið til liðs við Newcastle United. Ég hlakka til að byrja og hitta strákana í liðinu, sagði Guthrie.
Keegan var líka ánægður að hafa fengið Guthrie sem var á láni hjá Bolton á síðustu leiktíð.
„Ég er í skýjunum með að hafa fengið Danny. Hann sannaði sig í Úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þannig að við vitum að hann getur spilað í þessum gæðaflokki. Hann er á réttum aldri og er góð viðbót við hópinn,\" sagði Keegan.

Heimild: Sky Sports