Fotbolti.net
11.08.08 - 16:11
Davíð Örn Atlason

Younes Kaboul til Portsmouth (Staðfest)

Younes Kaboul til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Younes Kaboul, varnarmaðurinn knái hefur skipt yfir frá Tottenham yfir til bikarmeistaranna í Portsmouth.
Þessi franski leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Bæði Aston Villa og Sunderland voru á eftir þessum unga leikmanni, sem segir að Portsmouth hafi alltaf verið sinn fyrsti kostur.

,,Það var ekki erfitt að ákveða að fara hingað,\" sagði Kaboul við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Það stóð í öllum blöðum að ég væri að fara til Sunderland eða Aston Villa, en ég vildi koma hingað.\"

,,Ég kom hingað af því að stjórinn hefur viljað fá mig í tvö ár. Ég hitti hann fyrir tveimur árum síðan þegar að ég var leikmaður Auxerre og mér líkar við hann því að hann gefur þér sjálfstraust.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.