Fotbolti.net
11.08.10 - 10:29
Hörður Snævar Jónsson

Blackpool fær fjóra leikmenn (Staðfest)

Blackpool fær fjóra leikmenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ian Holloway stjóri Blackpool hefur náð að krækja í fjóra nýja leikmenn fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta eru þeir Craig Cathcart, Ludovic Sylvestre, Elliot Grandin og Malaury Martin.

Cathcart kemur frá Manchester United þar sem hann fékk ekkert að spila en hann skrifar undir þriggja ára samning.

Sylvestre er miðjumaður sem kemur frá Tékklandi en hann er uppalinn hjá Barcelona en hann skrifaði undir tveggja ára samning.

Franski miðjumaðurinn Martin skrifaði undir eins árs samning en hann heillaði Holloway á meðan hann var á reynslu.

Þá kemur Grandin frá CSKA Sofia og skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.