11.08.10 - 18:55
Tryggvi Páll Kristjánsson
Kenwyne Jones til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kenwyne Jones hefur verið seldur til Stoke frá Sunderland fyrir metfé, eða £8 milljónir.
Jones hefur spilað hjá Sunderland í þrjú ár, en hann kom frá Southampton árið 2007. Hann var oft einn af lykilmönnum liðsins, og skoraði 26 mörk með Sunderland á þessum tíma.
Jones hefur áður spilað hjá Stoke, en hann var þar á láni árið 2005 frá Southampton.
Stoke hafa verið að leita að sóknarmanni í sumar og Tony Pulis var mjög sáttur með þessi kaup.
\"Það er ekki hægt að spila á móti Kenwyne þegar hann er í toppformi, svo þetta eru frábær kaup fyrir þetta félag,\" sagði Pulis.

Heimild: Sky Sports