Fotbolti.net
11.08.10 - 21:12
Jóhann Óli Eiðsson

Nedum Onuoha til Sunderland á láni (Staðfest)

Nedum Onouha

Nedum Onouha

Canon

Mynd: Getty Images

Enski varnarmaðurinn Nedum Onuoha hefur gengið til liðs við Sunderland á láni út tímabilið frá Manchester City.
Hinn hálfnígeríski Onuoha, sem verður 24 ára gamall síðar á árinu, hefur leikið yfir hundrað leiki fyrir Man City og er enn í miklum metum innan félagsins og hjá stuðningsmönnum þess.

Hins vegar er erfitt að vinna sér sæti í byrjunarliði Roberto Mancini og því fær hann að yfirgefa liðið til að ná sér í meiri reynslu.

,,Nedum er frábær nútímavarnarmaður,\" sagði Steve Bruce, knattspyrnustjóri Sunderland, á heimasíðu félagsins.

,,Hann er stór, sterkur og snöggur auk þess sem hann er fjölhæfur og getur leyst af allar stöður í öftustu línu og það er hæfileiki sem ekki allir geta státað af.\"

Þess má til gamans geta að Onuoha þurfti að velja á milli frjálsíþrótta og knattspyrnu en hann á Bretlandsmet í þrístökku drengja undir fimmán ára og hefur hlaupið 100m hlaup undir ellefu sekúndum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.