Fotbolti.net
11.11.08 - 21:02
Hafliði Breiðfjörð

Guðbjörg Gunnarsdóttir til Djurgården (Staðfest)

Guðbjörg Gunnarsdóttir til Djurgården (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður Vals og landsliðsins er gengin í raðir sænska stórliðsins Djurgården en sænska félagið staðfesti þetta í fréttatilkynningu nú í kvöld.
Guðbjörg komst að samkomulagi við sænska félagið um helgina og mun fljúga utan á næstu dögum til að skrifa formlega undir samninginn auk þess að gangast undir læknisskoðun.

Hún hafði ætlað að skoða aðstæður hjá sænska félaginu Kristianstad á sunnudag en hætti við það þar sem samningurinn við Djurgården var í höfn.

Djurgården er eitt af bestu kvennaliðum heims og á vefsíðu UEFA er það rankað sem fimmta besta félag Evrópu.

Sænska kvennadeildin er ein af þremur bestu deildum heims í kvennaboltanum, auk þeirra þýsku og bandrísku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.