11.12.08 - 14:48
Hafliði Breiðfjörð
Valur Adolf Úlfarsson í ÍR (Staðfest)

Valur fagnar marki með Víkingi í 1. deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Valur Adolf Úlfarsson er genginn í raðir ÍR frá Víkingi R. Valur sem er 27 ára gamall hafði hætt með Víkingi á miðju tímabili í fyrra þar sem hann fékk starf við að fljúga erlendis og hafði ekki tíma fyrir boltann og starfið. Hann kemur nú aftur í íslenska boltann og leikur með ÍR í 1. deildinni í sumar.
,,Þetta var eini möguleikinn minn til að spila fótbolta áfram. Minn yfirmaður er líka formaður knattspyrnudeildar ÍR. Ég er að fljúga fyrir Astreus sem er með verkefni fyrir Iceland Express og í sumar gæti minn yfirmaður þar hliðað til fyrir mig,\" sagði Valur í samtali við Fótbolta.net í dag en Matthías Imsland forstjóri Iceland Express er formaður ÍR.
,,Ég býst við að ná öllum leikjum í sumar, ég fæ eitthvað frí og býst við að Matthías geti líka hjálpað mér þar sem hann er yfirmaður minn á báðum stöðum.\"
Valur lék 9 leiki með Víkingi í 1. deildinni í sumar en þurfti svo að hætta á miðju tímabili. Hann segir að það hafi verið efitt að aðlagast því að vera ekki lengur í fótbolta.
,,Ég var ekki alveg að tíma að hætta 27 ára og konan orðin brjáluð á að hafa mig heima og að gera ekki neitt. Ég var kominn í fjölda áhugamála og vissi ekkert hvað ég ætti að gera, fór í skvass, handboltalið og körfubolta og hvað eina. Ég verð að fá einhverja útrás,\" sagði hann.
,,Mér líst vel á þetta og þekki ágætlega til hjá ÍR því ég var þar fyrir þremur árum. Þjálfarinn er mjög þægilegur og mér líst vel á hópinn. Þetta verður örugglega jafnt mót í sumar og ÍA líklega langbest.\"
Hann kveður nú uppeldisfélag sitt Víking þar sem hann hefur leikið undanfarnar þrjár leiktíði eða síðan hann kom frá ÍR þar sem hann var sumarið 2005.
,,Það var ekkert annað í stöðunni ef ég vildi halda áfram svo Víkingar skildu mig fullkomlega. Ég skil við þá í mjög góðu, ég er og verð alltaf Víkingur,\" sagði hann að lokum.