Fotbolti.net
11.12.08 - 17:13
Hafliði Breiðfjörð

Jóna Sigríður og Tinna Mark í Hauka (Staðfest)

Jóna Sigríður í leik með Stjörnunni í sumar.

Jóna Sigríður í leik með Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóna Sigríður Jónsdóttir og Tinna Mark Antonsdóttir eru gengnar í raðir Hauka frá Stjörnunni en þetta er staðfest á vefsíðu félagsins í dag.
Báðar léku þær nokkra leiki með Stjörnunni á síðasta tímabili í Landsbankadeildinni en komu svo til Hauka um mitt sumar á láni og léku fimm leiki með Haukum í 1.deildinni.

Jóna Sigríður sem er 24 ára er uppalin hjá Haukum en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2004 og þar hefur hún leikið undanfarin ár. Hún leikur oftar en ekki í stöðu miðvarðar og er með gríðarlegt keppniskap og afar fljótur leikmaður sem mun án efa nýtast liðinu gífurlega mikið.

Tinna Mark sem er 23 ára er uppalin að norðan og lék nokkur ár með meistaraflokki Þór/KA/KS en fór svo til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2004. Og eins og Jóna hefur hún leikið með Stjörnunni síðan, fyrir utan hálft tímabilið í fyrra þegar hún kom til Hauka að láni. Tinna Mark getur bæði spilað í vörn og á miðjunni.

Haukar hafa þar með fengið til sín sex leikmenn frá því Salih Heimir Porca tók við þjálfun liðsins í haust. Áður höfðu komið Fjóla Dröfn Friðriksdóttir frá KR og þær Linda Rós Þorláksdóttir, Anna Margrét Gunnarsdóttir og Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir úr Keflavík.

Heimild: Vefsíða Hauka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.