Fotbolti.net
11.12.08 - 21:09
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Ólöf Olsen og Diljá Ólafsdóttir til KR (Staðfest)

Framherjinn Guðrún Ólöf Olsen í leik með Keflavík í sumar þar sem hún þurfti að taka fram markmannshanskana vegna meiðsla markmanns.

Framherjinn Guðrún Ólöf Olsen í leik með Keflavík í sumar þar sem hún þurfti að taka fram markmannshanskana vegna meiðsla markmanns.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR fékk liðsstyrk í dag þegar tvær ungar efnilegar stúlkur gengu í raðir félagsins. Þetta voru þær Guðrún Ólöf Olsen sem kemur til félagsins frá Keflavík og Diljá Ólafsdóttir sem kemur frá Þrótti.

Þetta staðfesti Gareth O\'Sullivan þjálfari KR í samtali við Fótbolta.net í gærkvöld.
KR hefur nú fengið fjóra leikmenn til liðs við sig frá því tímabilinu lauk því áður hafði Mist Edvardsdóttir komið frá Aftureldingu og Lilja Dögg Valþórsdóttir frá HK/Víking.

Liðið hefur orðið fyrir nokkurri blóðtöku því Hólmfríður Magnúsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir fóru í atvinnumennsku í Svíþjóð.

Þá fór Hrefna Huld Jóhannesdóttir í Stjörnuna og Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Hauka og ekki er enn ljóst hvort Þórunn Helga Jónsdóttir og Olga Færseth verði áfram með liðinu. Þórunn sem spilar með Santos í Brasilíu vill heldur spila erlendis og óljóst er hvort Olga leggi skóna á hilluna. Svo fór Margrét Þórólfsdóttir í Aftureldingu.

Guðrún Ólöf Olsen er 16 ára gömul en var þrátt fyrir það að leika sína aðra leiktíð í Landsbankadeild kvenna með Keflavík í sumar.

Hún lék 14 leiki með liðinu í deildinni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk.

Hún lék þá í framlínunni en í einum leik, gegn Val á Hlíðarenda, endaði hún í markinu eftir að Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir meiddist. Hún hafði einmitt haft reynslu af því að spila í marki í 3. flokki félagsins í sumar.

Hún lék þrjá leiki með U17 ára landsliði Íslands í sumar. Í heildina lék hún 21 leik fyrir uppeldisfélag sitt, Keflavík, en nú er hún farin í KR.

Diljá Ólafsdóttir er 18 ára gamall miðvörður sem kemur frá Þrótti þar sem hún er uppalinn og hefur leikið undanfarin ár.

Hún lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki sumarið 2006 er hún lék tvo leiki en undanfarin tvö ár hefur hún átt fast sæti í liðinu.

Hún hefur leikið 25 leiki með Þrótti á þeim tíma í 1. deild og bikarnum og skorað tvö mörk. Hún lék fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands á síðasta ári.
Diljá Ólafsdóttir í leik með Þrótti gegn FH í 1. deildinni í sumar.

Diljá Ólafsdóttir í leik með Þrótti gegn FH í 1. deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.