11.12.09 - 12:17
Magnús Már Einarsson
Rúnar Dór Daníelsson í Grindavík (Staðfest)

Rúnar Dór og Luka Kostic þjálfari Grindvíkinga.

Mynd: Grindavík

Rúnar Daníelsson markvörður hefur skrifað undir eins árs samning við Grindavík.
Hann er 25 ára og hefur verið aðalmarkvörður og fyrirliði Víðis í Garði undanfarin ár en hann er sonur Daníels Einarssonar sem var sem klettur í vörn Víðis á árum áður.
Rúnar hefur æft með Grindavík undanfarnar vikur og staðið sig feykilega vel.
Með því að skipta yfir í Grindavík hefur Rúnar komið við sögu hjá öllum Suðurnejsaliðunum nema Þrótti Vogum því hann á skráða leiki fyrir Njarðvík og Reyni og var auk þess varamarkvörður Keflavíkur fyrir nokkrum árum.
Rúnar mun berjast við markmannsstöðuna við Óskar Pétursson, sem stóð á milli Grinavík á síðustu leiktíð, og við hinn bráðefnilega Benóný Þórhallsson.