Fotbolti.net
12.01.05 - 14:56
Magnús Már Einarsson

Iuliano til Mallorca (Staðfest)

Dómari! þarftu gleraugu?

Dómari! þarftu gleraugu?

Canon
Mallorca hefur fengið varnarmanninn Mark Iuliano frá Juventus. Iuliano sem er 31 árs mun styrkja Mallorca mikið en liðið er með lélegustu vörnina í La Liga það sem af er tímabilinu, hefur fengið 30 mörk á sig í 18 leikjum. Talið er að Iuliano hafi skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Mallorca og hann geti leikið sinn fyrsta leik fyrir liðið gegn Real Betis á sunnudag.
Iuliano lék alls 187 leiki í Serie A með Juventus en hann kom til liðsins frá Salernitana árið 1996. Eftir að Fabio Capello tók við Juve í sumar hefur Iuliano hinsvegar lítið fengið að spila og aðeins leikið einn leik á öllu tímabilinu.

Héctor Cúper þjálfari Mallorca hefur verið duglegur að versla inn í janúar og hefur hann þegar fengið þá Bernardo Romeo, Gonzalo De los Santos og Yoshito Okubo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.